- 21.04.2026
Miðasala á nemendasýningu JSB hefst miðvikudaginn 22. apríl kl. 12:00.
Miðasala fer fram í Borgarleikhúsinu í síma 568-8000 eða á TIX.
Systkinaafsláttur:
Þeir foreldrar/forsjáraðilar sem eiga börn sem sýna sitthvorn daginn fá 50% afslátt af miðaverði. Hafið samband við [email protected] til að fá afsláttarhlekk.
ATHUGIÐ: Ekki er veittur afsláttur fyrir systkini sem sýna á sömu sýningu.
Um sýninguna:
KRAFTUR ALHEIMSINS
Nemendur og kennarar Danslistarskóla JSB setja á svið frumsamda danssýningu byggða á krafti alheimsins.
KRAFTUR ALHEIMSINS fylgir skuggaveru tunglsins á ferðalagi sínu til og frá jörðinni. Frá tunglinu dáleiðir jörðin veruna með fegurð, friðsæld og birtu en eins og allir vita gerir fjarlægðin fjöllin blá. Veran leggur af stað í ferðalag sem reynist alls ekki hættulaust því eldgos, svarthol og geimþoka verða á vegi hennar. Kemst veran heim til sín aftur eða finnur hún ný heimkynni annars staðar í alheiminum?
Nemendasýningar JSB fara fram í Borgarleikhúsinu dagana 4. og 5. maí 2026
Niðurröðun hópa á sýningardaga má finna HÉR.

