Dansmenning & félagslíf
Skólastarf JSB er suðupottur dans- og barnamenningar. Mikið félagslíf tengist viðburðum og sýningum á vegum skólans. Ýmislegt er gert til að efla félagslíf í skólanum og lagt er upp úr því að finna eitthvað við hæfi allra aldurshópa, bæði innanlands og utan landsteinanna.
Gistinótt
Meðal viðburða hjá 13-15 ára nemendum skólans er GISTINÓTT eða “sleep over”.
Gistinóttin er haldin að hausti, yfirleitt í byrjun október.
Nemendur mæta í JSB með dýnu og svefnpoka og gista í skólanum yfir nótt. Haldin er kvöldvaka þar sem farið er í hópeflisleiki, borðað og spjallað en með því er stuðlað að því að nemendur nái að kynnast vel fyrir komandi vetur.
Gistinótt 2026
Hrekkjavaka
Í síðustu vikunni í október höldum við upp á HREKKJAVÖKUNA! Nemendur mæta í búning og dansa hræðilega dansa í tímum.
Hrekkjavökuvikan endar á HREKKJAVÖKUBALLI fyrir 8-11 ára nemendur skólans. Nemendur fá nammi og drykki á ballinu og veitt eru verðlaun fyrir flottasta búninginn!
Leikhúsferðir
Árlega stendur skólinn fyrir skipulögðum LEIKHÚSFERÐUM þar sem nemendur og kennarar fara saman á danssýningar hjá Íslenska dansflokknum. Þar fá nemendur tækifæri til að njóta sín saman sem áhorfendur og leikhúsgestir.
Opið hús
Í lok haustannar bjóða nemendur fjölskyldu og vinum að skyggnast inn í hefðbundinn danstíma á OPNU HÚSI.
Jólakósýkvöld
Í síðustu kennsluviku fyrir jólin höldum við KÓSÝKVÖLD fyrir alla 12 ára nemendur skólans. Við spjöllum, borðum smákökur og drekkum heitt kakó og eigum notalega stund saman.
Jólakósýkvöld í desember 2023
Londonferð
Í febrúar ár hvert stendur JSB fyrir DANSFERÐ TIL LONDON.
Nemendur af framhaldsstigi listdansbrautar (16 ára og eldri) sækja danstíma í Pineapple Dance Studios, fara á danssýningar, söngleiki o.fl.
Ferðirnar hafa verið mjög vinsælar og lærdómsríkar fyrir nemendur.
London 2025
Dansbikarinn
DANSBIKARINN er innanhússdanskeppni fyrir alla 10-15 ára nemendur skólans.
Nemendur semja 1,5-2 mínútna atriði sjálfir. Stig eru gefin fyrir frumsaminn dans, búningaval, hár & forðun, lagaval og túlkun.
Dómarar hverju sinni eru 3. árs nemi af Listdansbraut JSB, kennari í JSB ásamt einum atvinnudansara.
Árshátíðir
Á vorönn er haldin ÁRSHÁTÍÐ fyrir 13-15 ára nemendur. Nemendur koma í sínu fínasta pússi, borða góðan mat, horfa á skemmtiatriði og dansa fram eftir kvöldi!
Nemendur á Listdansbraut JSB halda einnig glæsilega ÁRSHÁTÍÐ á hverju vori.
Keppnisferðir
Nemendahópar frá 13 ára aldri hafa fengið að spreyta sig í alheimskeppnunum DANCE WORLD CUP og/eða GLOBAL DANCE OPEN, bæði í undankeppnum hérlendis sem og aðalkeppnum erlendis.
Þátttakan eins og sér er mikil upplifun og auðvitað skemmir ekki fyrir þegar vel gengur.
Stefnt er á að fara annað hvert ár í keppnisferð erlendis.
Global Dance Open í Hollandi 2024
Leedsferð
Sumarið 2023 fóru nemendur úr JSB í fyrsta sinn í dansæfingabúðir í NORTHERN SCHOOL OF CONTEMPORARY DANCE Í LEEDS. Nemendur dansa allan daginn frá mánudegi til föstudags og vinna skapandi vinnu með danshöfundum. Vikan endar á sýningu þar sem nemendur sýna afrakstur vikunnar.
Nemendum á grunn- og framhaldsstigi listdansbrautar, 14 ára og eldri, stendur Leedsferðin til boða annað hvert ár.
Leeds 2025
NEMÓ - nemendafélag Listdansbrautar JSB
Starfrækt er nemendafélag á vegum Listdansbrautar JSB. Að jafnaði eru sex nemendur í stjórn félagsins hverju sinni, eða tveir af hverju ári. Á vorin er kosning í stjórnina fyrir komandi skólaár.
Nemendafélagið stendur fyrir alls kyns viðburðum fyrir nemendur listdansbrautar.
Helstu viðburðirnir eru BUSAKVÖLD og ÁRSHÁTÍÐIN.
Aðrir minni viðburðir eru t.d. PIZZAPARTÝ, BÍÓKVÖLD, LEIKHÚSFERÐIR og SUNDFERÐIR.
Megin markmið nemendafélagsins er að skapa grundvöll fyrir nemendur til að hittast og eiga góðar samverustundir utan danssalarins og skapa þannig sterkari vinabönd.
Instagram síða nemó JSB
Stjórn Nemó 2025-2026

