Jazzballettnám
Við í Danslistarskóla JSB sérhæfum okkur í jazzballett.
Jazzballettnám er vinsælt og fjölbreytt dansnám sem hefur þróast á hátt í 60 ára starfsferli skólans. Jazzballettnám er við allra hæfi.
Megináhersla er lögð á jazzdans, alhliða líkamsþjálfun og danstækni, bæði jazz- og klassíska danstækni.
Markmið kennslu & hæfniviðmið
Í jazzballettnámi er lögð áhersla á dansgleði.
Nemendur eru hvattir til dáða og örvaðir til framfara. Nemendur stunda námið á eigin forsendum, sér til ánægju. Árangursmarkmið eru einstaklingsbundin, miðuð við aldur og þroska nemandans. Það er ákveðinn stígandi og uppbygging í náminu.
Engin próf eru í jazzballettnáminu en kennarar skólans vinna markvisst að því að nemendur nái eftirfarandi hæfniviðmiðum.
Nemandi getur:
- Beitt líkama sínum af öryggi í dansi og hreyfingu, sjálfum sér til ánægju
- Notað þekkingu sína og tæknilega færni í jazzdansi
- Beitt sér rétt útfrá líkams- og danstækniæfingum og stuðlað þannig að eigin hreysti og velferð
- Tjáð og túlkað tilfinningar í gegnum dans og leikræna tjáningu
- Samhæft mismunandi tónlist, hreyfingar og dansstíla
- Dansað í hóp eftir fyrirskipuðu mynstri og formi
- Skynjað umhverfi sitt og rými í hreyfingu
- Dansað á leiksviði og tekið virkan þátt í samstarfi og undirbúningsvinnu vegna sýningar
JSB fyrir alla dansara!
Eftirfarandi þættir liggja til grundvallar dansþjálfuninni:
- Samhæfing líkamshreyfinga
- Jazz- og nútímadanstækni (blönduð tækni)
- Klassískur ballett (grunnþjálfun – Vaganova kerfi)
- Styrktar-og liðleikaþjálfun
- Mismunandi jazzdansstílar
- Dansspuni og leikræn tjáning
- Tónskynjun og túlkun hreyfinga við tónlist
- Dansverkefni byggð á ofangreindum þáttum
- Nemendur taka þátt í nemendasýningum skólans í Borgarleikhúsinu
Kennslufyrirkomulag
Skólaárinu er skipt í haustönn og vorönn. Tímabilið miðast við skiptingu anna í grunnskólum.
Nemendur, jafnt stelpur sem strákar, eru teknir inn í jazzballettskólann frá 6 ára aldri. Nemendum er skipt í hópa eftir aldri.
Engin sérstök inntökuskilyrði eru í jazzballettnámið.
Kennsla fer fram síðdegis og um helgar, þ.e. eftir hefðbundinn skólatíma. Kennt er í 2-3 kennslustundir á viku, 60 mínútur í senn.
Sýningar & viðburðir
Hluti af skipulagi námsins er uppsetning danssýninga og þátttaka í fjölbreyttum listviðburðum.
Í lok hverrar annar eru haldnar formlegar og óformlegar sýningar þar sem nemendur fá þjálfun í miðlun og sviðsframkomu.
„Opið hús“ er fastur liður í nóvember/desember þar sem nemendur bjóða vinum, vandamönnum og öðrum áhugasömum í heimsókn í kennslustund. Veitt er innsýn í dansnámið og verkefni nemenda á opnu húsi.
Á skólaárinu taka nemendur þátt listahátíðum fyrir börn og unglinga s.s. í Unglist (16-25 ára), Barnamenningarhátíð og öðrum tilfallandi viðburðum.
Allir nemendur taka þátt í viðamikilli nemendasýningu í Borgarleikhúsinu á hverju vori. Í gegnum undirbúningsvinnu sýningar og viðburðatengd verkefni fá nemendur ómetanlega þjáflun í sviðsframkomu, tjáningu, samstarfi og félagslegri færni svo fátt eitt sé nefnt.








