Grunnstig
Langar þig að taka dansinn á næsta stig? Grunnstigið okkar er fyrsta skrefið á Listdansbraut JSB og er fyrir unga dansara sem vilja dansa meira.
Á grunnstigi kynnast nemendur nýjum hliðum dansins. Jazzballettinn er áfram í forgrunni, en við bætast klassískur ballett, nútímadans og styrktarþjálfun. Nemendur verða sterkari, fjölhæfari og öruggari dansarar, og vel undirbúnir fyrir framhaldsstig í listdansi.
Æft er 4–10 klst. á viku yfir veturinn, í 36 vikur. Nemendum er raðað í hópa eftir aldri og aðeins einn hópur er í boði fyrir hvern árgang.
Nemendur eru valdir inn út frá hæfileikum, getu og þroska, svo hér dansar þú með metnaðarfullum hópi sem deilir sömu ástríðu og þú.
Tímafjöldi á grunnstigi
Jazzballett: 2 x 90 mín
Klassískur ballett: 2 x 60 mín
Nútímadans: 1 x 60 mín
Jazzballett: 2 x 90 mín
Klassískur ballett: 2 x 90 mín
Nútímadans: 1 x 90 mín
Jazzballett: 2 x 90 mín
Klassískur ballett: 2 x 90 mín
Nútímadans: 2 x 90 mín
Jazzballett: 2 x 90 mín
Klassískur ballett: 2 x 90 mín
Nútímadans: 2 x 90 mín
Styrktarþjálfun: 1x 60 mín
Inntökupróf
Á hverju ári eru haldin inntökupróf á grunnstigið fyrir áhugasama nemendur. Í inntökuprófinu gera nemendur upphitun, æfingar úr horni og læra dans.
Inntökupróf fyrir skólaárið 2027-2028 verður haldið á vorönn 2027. Nánar auglýst þegar nær dregur.









