jsb_logo

Listdansbraut – framhaldsstig

Framhaldsskólastig

Listdansbraut JSB

Er dansinn þín ástríða?

Á Listdansbraut JSB færðu tækifæri til að taka dansinn alla leið. Þú æfir með metnaðarfullum hópi, lærir af reyndum kennurum og stígur oft á svið, allt á meðan þú lýkur framhaldsskólanámi.

Hér fær sköpunargleðin að njóta sín, þú ýtir þér út fyrir þægindarammann og færð að vaxa sem dansari. Námið hentar þeim sem vilja meira en hefðbundna danstíma og dreyma jafnvel um framtíð í dansheiminum.

Kynntu þér námið hér fyrir neðan!

Hvernig virkar námið?

Framhaldsskólastig Listdansbrautar JSB er nútímalistdansbraut sem jafngildir listdanskjörsviði á listdansbraut til stúdentsprófs við Menntaskólann í Hamrahlíð.

Nám á listdansbraut er sérhæft dansnám sem miðast við námslok á hæfniþrepi 3 – 4 samkvæmt skilgreiningu aðalnámsskrár framhaldsskóla.

Framhaldsskólar aðrir en MH geta metið dansnámið inn á námsbrautir sínar, eftir þörfum nemenda. Nemendum er þannig gefið svigrúm til að skipuleggja nám sitt sjálfir, þeir geta þá valið að nýta dansnámið sem hluta af stúdentsprófi eða öðru lokaprófi úr framhaldsskóla.

Námið veitir góðan undirbúning fyrir háskólanám í listgreininni og er fyrst og fremst ætlað þeim sem stefna á að starfa við listgreinina eða tengd störf. Inntak námsins tekur mið af lykilþáttum aðalnámsskrár fyrir framhaldsskóla.

Markmiðið er að byggja upp og efla hæfni nemenda með hliðsjón af lykilþáttunum þar sem hugtökin heilbrigði og velferð, lýðræði, jafnrétti, læsi, sköpun og sjálfbærni eru höfð í fyrirrúmi.

Að dansnámi loknu útskrifast nemendur sem stúdentar frá MH af listdansbraut. Að auki fá nemendur útskriftarskírteini frá Danslistarskóla JSB, náminu til staðfestingar.

Inntökuskilyrði

Hver sá er hugar að framtíð innan listdansins getur skráð sig í inntökupróf. Inntökuprófið hefur það markmið að velja nemendur m.t.t. hæfileika, hæfni og möguleika til framfara.

Dansnám á jazz- & nútímadanslínu

Í námskránni eru skilgreindir námsáfangar sem miða að því að nemendur fái fjölhæfa þjálfun í gegnum mismunandi danstækni og áherslur í áföngum:

NTDA - releasetækni
NTDA - Grahamtækni
NTDA - samtíma- og snertispunatækni
DJAS - jazzdanstækni
KLAD - klassískur ballett
SPDA - spuni
DSMÍ - danssmíði
PROJ - dansverk

Þessar námsgreinar eru valdar til að gefa nemandanum tæki til þess að fóta sig í síbreytilegum heimi dansins. Þær eiga að opna hug hans fyrir mismunandi möguleikum nútímalistdansins, byggja upp sjálfstraust og hvatningu til framsækni, áræðni og hugrekki til að skapa og leita á ný mið. Leitast er við að veita nemendum kjarngóðan undirbúning og sterkan grunn fyrir áframhaldandi listdansnám á háskólastigi.

Danssýningar

Hluti af skipulagi námsins er uppsetning danssýninga. Í gegnum undirbúningsvinnu sýninga og viðburðatengd verkefni fá nemendur ómetanlega þjálfun í sviðsframkomu, tjáningu, samstarfi og félagslegri færni.

Haldnar eru veglegar útskriftarsýningar 3. árs nema ár hvert þar sem nemendur takast á við krefjandi uppsetningu á lokaverkefnum sínum í danssmíðum. Allir nemendur Listdansbrautar JSB taka þátt í viðamikilli nemendasýningu í Borgarleikhúsinu á hverju vori. Listdansbrautarnemar taka einnig þátt í Unglist sem er sýning á vegum Hins hússins.

Dreifing áfanga á sex annir

Nám á nútímalistdansbraut gefur 91 F-einingu til framhaldsskólaprófs á listdansbraut MH. 

Nemendur æfa 16-20 klst á viku að meðaltali. 

Kennslugreinar Önn 1Önn 2Önn 3Önn 4Önn 5Önn 6
Klassískur ballett KLAD1GÞ05 KLAD1SJ05 KLAD2MF05 KLAD2NT05 KLAD3TS05 KLAD3HS05
Nútíma- og samtímadans NTDA2NR05 NTDA2GN05 NTDA3NR05 NTDA3SD05 NTDA3SP05
Spuni SPDA2MH02 SPDA2LS02
Jazz DJAS1CS03 DJAS2CM03 DJAS3LS03 DJAS3BM03 DJAS4CJ03
Danssmíði DSMÍ2GD03 DSMÍ3MD03 DSMÍ3KD04
Project / dansverk PROJ2NA02 PROJ3NB02 PROJ4NC03

Skólanámskrá Listdansbrautar JSB

Skoða HÉR

Félagslíf

Á hverju ári stendur nemendum Listdansbrautar JSB til boða að fara í námsferð til London. Nemendur sækja danstíma í Pineapple Dance Studios, fara á danssýningar, söngleiki o.fl. Annað hvert ár geta nemendur tekið þátt í keppnisliði skólans og farið erlendis í danskeppnir, t.d. Dance World Cuð eða Global Dance Open.

Starfrækt er nemendafélag á vegum Listdansbrautar JSB. Að jafnaði eru sex til níu nemendur í stjórn félagsins hverju sinni, eða tveir til þrír af hverju ári. Á vorin er kosning í stjórnina fyrir komandi skólaár.

Nemendafélagið stendur fyrir allskyns viðburðum fyrir nemendur listdansbrautar. Helstu viðburðirnir eru busakvöld og árshátíðin. Aðrir minni viðburðir eru t.d. pizzapartý, bíókvöld, leikhúsferðir og sundferðir. Megin markmið nemendafélagsins er að skapa grundvöll fyrir nemendur til að hittast og eiga góðar samverustundir utan danssalarins og skapa þannig sterkari vinabönd.

Hér er Instagram síða nemó JSB

Í stjórn nemendafélags JSB 2026-2027 eru eftirfarandi nemendur:
Agnes Lóa Heimisdóttir, Björk Elínborg Guðmundsdóttir, Brynja Karen Hjaltested, Edil Mari Campos Tulagan, Elín Víðisdóttir, Hildur Gunnarsdóttir, María Dóra Hrafnsdóttir og Yrsa Róbertsdóttir.