- 01.06.2026
Victoría Uyen To Bui útskrifaðist af Listdansbraut JSB í síðustu viku og úr Menntaskólanum við Hamrahlíð um liðna helgi.
Victoría hefur verið nemandi í JSB í fjölda ára, fyrst í jazzballettnáminu, svo á grunnstiginu og síðar á listdansbrautinni. Á þessum árum hefur hún tekið gríðarlega miklum framförum sem dansari. Í útskriftarathöfn MH hlaut hún viðurkenningu fyrir góðan námsárangur í listgreinum.
Í haust heldur hún til Spánar þar sem hún mun stunda dansnám við Institue of the Arts Barcelona.
Takk fyrir samveruna í öll þessi ár elsku Victoría okkar! Við óskum þér alls hins besta í framtíðinni.
Kær kveðja og risastórt knús!
Kennarar JSB

