Um kennara
Þórdís er skólastjóri Danslistarskóla JSB.
Hún útskrifaðist frá JSB árið 2000 en þaðan lá svo leiðin til London Studio Centre sem hún útskrifaðist frá árið 2003.
Alla tíð síðan hefur Þórdís kennt hjá JSB samhliða dansverkefnum hér á landi sem og erlendis.
Hún hefur tekið þátt í allskyns dans- og tónlistarverkefnum, má þar nefna DANSleikhúsið-sem var virkur dansflokkur á vegum JSB, Reykjavik Dance festival, Jazzfestival, listahátið í Færeyjum og á Íslandi, INTOTO nemendadansflokkur LSC, söngleikurinn Hafið Bláa og tónlistarsýningin Tina Turner.
Einnig hefur hún samið dansa fyrir ótal nemendasýningar JSB, fyrir Unglist og menntaskólasönleiki, og ýmsar uppfærslur úti á landi og í Færeyjum.
Þórdís var meðlimur í Sirkus Íslands til margra ára, og sýndi þar loftfimleika og sinnti almennum sirkusstörfum. Hún hefur sótt mörg sirkus- og dansnámskeið erlendis, og m.a. tekið þátt í CARE sem er tilraunaverkefni valinna dansara og sirkusmanna um heima allan, var hún þar sem fulltrúi Íslands.
Netfang: [email protected]

