jsb_logo

Um kennara

Rebekka Sól Þórarinsdóttir

Viðburðastjóri og kennari

Um kennara

Rebekka Sól hóf nám í Danslistarskóla JSB árið 2010 eftir að hafa verið í fimleikum í 6 ár. Hún kláraði grunnstig og framhaldsstig listdansbrautar í JSB og útskrifaðist bæði af náttúrufræði- og listdansbraut MH árið 2019.

Að loknu stúdentsprófi hóf Rebekka strax nám í Listaháskóla Íslands á samtímadansbraut og sótti skiptinám í Falmouth University í Englandi. Hún útskrifaðist með BA gráðu í samtímadansi árið 2022. Samhliða námi tók hún þátt í ýmsum verkefnum og sýningum.

Rebekka starfar núna sem sjálfstætt starfandi danslistarkona og hefur dansað í fjölda sýninga og hátíða eins og Reykjavík Dance Festival, Iceland Airwaves og Menningarnótt. Rebekka hefur einnig kóreografað fyrir sýningar og unnið sem sýningarstjóri fyrir Unglist.

Rebekka byrjaði að kenna hjá Danslistarskóla JSB samhliða BA náminu sínu og leggur mikla áherslu og góða tækni sem er grunnur í öllum dansstílum. Hún hefur einnig starfað sem viðburðastjóri á skrifstofu skólans síðan haustið 2024.

Rebekka elskar að sjá nemendur sýna blómstra og auka sjálfstraustið sitt við að prófa nýja hluti.

Tímar:

2.-3. ár - nútímadans
1. ár - ballett
7. stig - nútímadans