Jazzballettnám
Skemmtilegt og hvetjandi dansnám fyrir börn og fullorðna með sérþarfir. Dansgleði og hreyfifærni nemenda er virkjuð í gegnum dans og leiki.
Kennt er 2x í viku í 60 mínútur í senn.
Jazzballettnám er fyrir alla
Við í Danslistarskóla JSB sérhæfum okkur í jazzballett.
Jazzballettnám er vinsælt og fjölbreytt dansnám sem hefur þróast á hátt í 60 ára starfsferli skólans. Jazzballettnám er við allra hæfi.
Markmið kennslu & hæfniviðmið
Í jazzballettnámi er lögð áhersla á dansgleði.
Nemendur er hvattir til dáða og örvaðir til framfara. Árangursmarkmið eru einstaklingsbundin, miðuð við þroska nemandans.
Kennari er Lilja Helgadóttir.
Við bjóðum upp á einstaklingsviðtöl fyrir þá sem vilja frekari upplýsingar um hvort námið henti. Hægt er að bóka tíma á [email protected]
Sýningar & viðburðir
Hluti af skipulagi námsins er uppsetning danssýninga. Í lok hverrar annar eru haldnar formlegar eða óformlegar sýningar þar sem nemendur fá þjálfun í sviðsframkomu.
Í lok haustannar bjóða nemendur fjölskyldu og vinum á „opið hús“ þar sem gestir fá innsýn í dansnámið og verkefni nemenda í hefðbundnum kennslustundum.
Nemendur taka þátt í viðamikilli nemendasýningu í Borgarleikhúsinu á hverju vori. Í gegnum undirbúningsvinnu sýningar fá nemendur ómetanlega þjálfun í sviðsframkomu, tjáningu, samstarfi og félagslegri færni svo fátt eitt sé nefnt.






