jsb_logo

Bronsverðlaun í Þýskalandi!

Dásamlegi danshópurinn okkar er kominn heim eftir frábæra ferð til Þýskalands. Þar kepptu stelpurnar á dansmóti á vegum Special Olympics í fyrsta skipti og gerðu sér lítið fyrir og hlutu bronsverðlaun í hópakeppni!🥉🇮🇸

Special Olympics eru alþjóðleg íþróttasamtök sem leggja áherslu á þátttöku, jafnrétti og tækifæri fyrir alla keppendur til að njóta sín og sýna hæfileika sína. Auk stóru heimsleikanna, sem haldnir eru á fjögurra ára fresti, eru haldin fjölmörg minni mót víða um heim á hverju ári í alls konar greinum, þar á meðal dansi. Það var einmitt á slíkt mót sem hópurinn okkar fór.

Mótið var haldið í litlum og notalegum dansskóla í Ahrensburg, rétt utan við Hamborg. Föstudagurinn var notaður til að kynnast aðstæðum og æfa á sviðinu. Á laugardeginum fóru svo fram undanúrslit og á sunnudeginum úrslit.

Um 120 keppendur tóku þátt frá Þýskalandi, Sviss, Austurríki, Ítalíu og Íslandi. Keppt var í fjölbreyttum flokkum, m.a. sóló, dúett, hópatriðum og samkvæmisdönsum. Einnig var keppt í frjálsum dansi eða „freestyle“. Okkar hópur keppti með hópatriði í flokknum „performing acts“. 

Hópinn skipuðu þær Bergdís Inga Tong Guðjónsdóttir, Guðlaug Esther Hlöðversdóttir, Katrín Lilja Harðardóttir, Katrín Líf Vignisdóttir og Klara Lyngdal Kjartansdóttir. Þær dönsuðu verkið Ég ætla að dansa sem samið var af þjálfurum hópsins, Lilju Helgadóttur og Kolbrúnu Elvi Harðardóttur ásamt Þórdísi Schram skólastjóra JSB.

Lilja hannaði og saumaði æðislega bleika samfestinga á hópinn og mömmurnar í hópnum sáu um hár og förðun á keppnisdögum.

Við erum ótrúlega stolt af dönsurunum okkar og þökkum þjálfurum, foreldrum og öllum sem lögðu hönd á plóg kærlega fyrir. 

Til hamingju með bronsið, elsku stelpur! 🥉💗