- 17.03.2026
DANSBIKARINN er innanhúss danskeppni í JSB þar sem nemendur fá tækifæri til að semja dans sjálfir og efla sköpunargleðina.
DANSBIKARINN 2026
Keppnin fór fram 15. mars s.l. þar sem nemendur á aldrinum 10-16 ára kepptu með sóló eða dúett/tríó í tveimur aldursflokkum. Stig voru gefin fyrir frumsaminn dans, búningaval, hár & förðun, lagaval og túlkun.
Nemendur á 2. og 3. ári Listdansbrautar JSB sáu um skipulag og undirbúning keppninnar ásamt stjórn skólans.
Við erum gríðarlega stoltar af öllum þeim nemendum sem tóku þátt og hlökkum til að sjá þá semja fleiri dansa í framtíðinni!
Sigurvegarar DANSBIKARSINS 2026:
- Sóló – yngri: Selma Ösp Ægisdóttir með atriðið Heimþrá
- Sóló – eldri: Ásta Lilja Víðisdóttir með atriðið Maybe
- Dúett/tríó – yngri: Selma Ösp Ægisdóttir og Sigurdís Ásta Brynjarsdóttir með dúettinn Let Her Go
- Dúett/tríó – eldri: Lillý Guðrún Breiðfjörð og Unnur H. Óskarsdóttir með dúettinn Svefngalsi

















