- 09.03.2026
Dansflokkur JSB tekur þátt í aðalkeppni Global Dance Open sem fer fram í San Sebastian á Spáni dagana 14.-19. júlí 2026.
Í febrúar tók hópurinn þátt í rafrænni undankeppni Global Dance Open með frábærum árangri en öll átta atriði hópsins komust áfram í aðalkeppnina.
Dansflokkurinn tók einnig þátt í undankeppni Dance World Cup í Borgarleikhúsinu með glæsilegum árangri. Undankeppni DWC var hugsuð sem frábært tækifæri fyrir hópinn að dansa og æfa sig í sviðsframkomu.
Dansarar í Dansflokki JSB: Agnes Lóa Heimisdóttir, Ásta Lilja Víðisdóttir, Brynja K. Hjaltested, Elín Víðisdóttir, Hekla Guðrún M. Pálsdóttir, María Dóra Hrafnsdóttir, Sigrún Æsa Pétursdóttir, Victoría Uyen To Bui, Ylfa Blöndal Egilsdóttir, Yrsa Róbertsdóttir.
Við hlökkum mikið til að fylgjast með hópnum á Spáni í sumar!







