jsb_logo

Um kennara

Ingibjörg Viktoría Hafsteinsdóttir

Kennari

Um kennara

Ingibjörg Viktoría hóf dansnám sitt 8 ára gömul í JSB þar sem hún æfði jazzballett óslitið þar til hún lauk stúdentsprófi frá Kvennaskólanum í Reykjavík vorið 2014. Að loknu stúdentsprófi hóf hún nám á framhaldsskólastigi Listdansbrautar JSB. Ingibjörg tók þátt í öllum nemendasýningum skólans í Borgarleikhúsinu til ársins 2017 en hún útskrifaðist af Listdansbraut JSB í desember sama ár.

Samhliða listdansbrautinni lauk hún prófi frá Hússtjórnarskóla Reykjavíkur og hóf nám í sjúkraþjálfun við Háskóla Íslands. Ingibjörg lauk háskólanámi sínu í júní 2021 og starfar nú sem sjúkraþjálfari á Reykjalundi.

Hefur starfað sem danskennari frá hausti 2018.