jsb_logo

Nemendasýning JSB 2026

Nemendasýningar JSB verða sýndar í Borgarleikhúsinu 4. og 5. maí!
Takið dagana frá!!

💥 KRAFTUR ALHEIMSINS 💥

Nemendur og kennarar Danslistarskóla JSB setja á svið frumsamda sýningu byggða á krafti alheimsins 💥

KRAFTUR ALHEIMSINS fylgir skuggaveru tunglsins á ferðalagi sínu til og frá jörðinni. Frá tunglinu dáleiðir jörðin veruna með fegurð, friðsæld og birtu en eins og allir vita gerir fjarlægðin fjöllin blá. Veran leggur af stað í ferðalag sem reynist alls ekki hættulaust því eldgos, svarthol og geimþoka verða á vegi hennar.


Niðurröðun hópa:

Hópar sem sýna mánudaginn 4. maí 2026, kl. 17:00 & 19:00:

  • 3.-4. stig – kennari: Rósa Rún
  • Hópur B1 – kennari: Sara Atla
  • Hópur D1 – kennari: Elín
  • Hópur E2 – kennari: Anna Kolbrún
  • Hópur F2 – kennari: Ingibjörg Viktoría
  • Hópur G3 / H1 – kennarar: Lilja og Ingibjörg Viktoría – aðeins kl. 17:00

Hópar sem sýna þriðjudaginn 5. maí 2026, kl. 17:00 & 19:00:

  • Hópur C1 – kennari: Sara Dís
  • Hópur D2 – kennari: María Sara
  • Hópur E1 – kennari: Úlfhildur Melkorka
  • Hópur F1 – kennari: Weronika María
  • Hópur G1 – kennari: Ingibjörg Viktoría – aðeins kl. 19:00
  • Hópur G2 – kennari: Ingibjörg Viktoría – aðeins kl. 17:00
  • Hópur I1 – kennari: Lilja

Hópar sem sýna báða dagana, kl. 17:00 & 19:00:

  • Listdansbraut JSB – 1., 2. & 3. ár
  • 7. stig – kennari: Þórdís
  • 6. stig – kennari: Nína Margrét
  • 5. stig – kennari: Gertruda

 

Við minnum á mikilvægi þess að mæta vel í alla danstíma svo undirbúningur fyrir sýninguna gangi sem best. 

Miðasala verður auglýst þegar nær dregur.