jsb_logo

Listdansbraut – grunnstig

  • shape
  • shape
Listdansbraut – grunnstig

Lýsing á náminu

Danslistarskóli JSB býður uppá grunnám í listdansi, sem er partur af Listdansbraut JSB.

HVAÐ ER GRUNNSTIG?

Þar gefst áhugasömum nemendum tækifæri til að bæta við sig þekkingu og kunnáttu á fleiri dansstílum en jazzballet. Grunnstigið er því tilvalin undirbúningur fyrir þá sem ætla að fara á framahaldsbraut í listdansi.

Á grunnstigi er kenndur jazzballett, en auk þess lærir nemandinn klassískan ballett, nútímadans og styrktarþjálfun. Kennt er frá 4 klst. uppí 10 klst á viku í 36 vikur yfir veturinn. Nemendum er raðað í hópa eftir aldri. Einungis einn hópur er í boði fyrir hvern árgang. Nemendur eru valdir útfrá hæfileikum, getu og þroska.

INNTÖKUPRÓF FYRIR SKÓLAÁRIÐ 25/26.

Inntökupróf fyrir nemendur fædda 2010-2013 verður haldið í húsakynnum JSB þann 21.maí 2025. Skráning HÉR