jsb_logo

Um kennara

Gertruda Paceviciute

Kennari

Um kennara

Gertruda byrjaði í samkvæmisdansi árið 2006 hjá DÍK og hóf nám hjá JSB árið 2010. Hún fór í gegnum bæði grunn- og framhaldsstig listdansbrautar og útskrifaðist af listdansbraut MH og JSB árið 2019. Samhliða náminu hefur hún tekið þátt í fjölmörgum sýningum og verkefnum fyrir hönd skólans, svo sem á nemendasýningum, Unglist og Color Run. Hún hefur einnig reynslu af öðrum dansverkefnum, þar á meðal sem dansari hjá söngkonunni Siggu Ózk og í vinnustofunni Reykjavík Dance Project.

Gertruda hefur kennt hjá JSB frá árinu 2019 og leggur áherslu á góðan anda, metnað og gleði í sínum tímum. Hún er með MT gráðu í grunnskólakennslu yngri barna og nýtir þá reynslu og þekkingu óspart í kennslunni til að ná til nemenda á hvetjandi hátt. Í vetur mun hún kenna 5. stigi jazzballett og hún hlakkar ótrúlega mikið til að sjá nemendur blómstra, ná nýjum markmiðum og hafa gaman saman í danssalnum!

Tímar:

Jazzballett – 5. stig