- 08.05.2026
Nemendasýning JSB 2026
Fjórar DÁSAMLEGAR nemendasýningar að baki og við svífum um á bleiku skýi!
Það sem við erum stoltar af öllu okkar fólki – nemendum, kennurum og öllu aðstoðarfólki!
Takk elsku fjölskyldur og vinir fyrir að koma og horfa á sýninguna okkar KRAFTUR ALHEIMSINS í Borgarleikhúsinu. Þetta hefði ekki verið hægt án ykkar áhorfendanna!
Sjáumst aftur að ári á 60 ára afmælissýningu JSB!!!
Við hvetjum ykkur öll til að fylgja okkur á samfélagsmiðlum þar sem við munum deila myndum og myndböndum frá sýningunni á næstu dögum og vikum!

