jsb_logo

Unglist 2027

Unglist 2027

Nemendur af Listdansbraut JSB tóku þátt í danssýningu Unglistar, Listin að dansa // The Art of Dance, í Borgarleikhúsinu sunnudaginn 1. nóvember.

Ár hvert dansa fjölmargir dansskólar og danshópar af landinu á danssýningu Unglistar og árið í ár var engin undantekning. 

Júlía Kolbrún Sigurðardóttir, ballettkennari í JSB, samdi Unglistaratriði skólans þetta árið. Verkið bar heitið Rýmið talar ef þú sérð.

Dansarar voru Agnes Lóa Heimisdóttir, Brynja K. Hjaltested, Elín Víðisdóttir, Erla Sólbjört Jónsdóttir, Hrafnhildur Hekla Jósefsdóttir, Líf Karlotta Young, María Dóra Hrafnsdóttir, Saga Matthíasdóttir Gunnell, Sigrún Marta Arnalds og Yrsa Róbertsdóttir.

Myndir & myndbönd frá Unglist má finna á samfélagsmiðlum skólans.

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *